Það mun hafa verið árið 1973 sem hugmynd að Andrésar Andar leikunum á Akureyri kom fram á fundi áhugamanna um skíðaíþróttina. Sá sem kom með þessa ágætu hugmynd var Leifur Tómasson. Málið var síðan í athugun til ársins 1976, en þá urðu fyrstu Andrésar Andar leikarnir að veruleika, nánar tiltekið dagana 3. og 4. apríl. Hefur þetta verið árviss atburður síðan og notið vaxandi hylli allra sem þar hafa komið nálægt, bæði barna og fullorðinna.
Fyrstu framkvæmdanefndina skipuðu þeir Gísli Kr. Lórenzson, Leifur Tómasson, Hermann Sigtryggsson, Kristinn Steinsson og Ívar Sigmundsson. Nú eru í nefndinni Gísli Kr. Lórenzson, Ívar Sigmundsson, Gísli Már Ólafsson, Þóra Leifsdóttir, Friðrik Adólfsson, Jóhannes Kárason, Óðinn Árnason og Kristinn Steinsson.Mótið hefur verið ungu kynslóðinni mjög kærkomið, svo sem sjá má af sívaxandi þátttöku, því fyrsta árið, 1976, voru keppendur 148 en 25 árum seinna eru þeir á bilinu 750 - 800. Sá fjöldi hefur verið um nokkurra ára skeið. Andrésar Andar leikarnir eru því lang fjölmennasta skíðamót landsins.
Í fyrstu var einungis keppt í svigi og stórsvigi drengja og stúlkna á aldrinum 7 - 12 ára, en frá árinu 1980 hefur einnig verið keppt í göngu drengja og stúlkna. Frá sama tíma var einnig keppt í stökki drengja, en það var síðan lagt niður1995 og í staðinn kom risasvig.
Þegar blaðað er í gömlum úrslitum frá Andrésar Andar leikunum kemst maður fljótt að því að besta skíðafólk landsins á seinni árum byrjaði feril sinn á leikunum.Í gegnum árin hefur Andrés notið þess að eiga mjög góða styrktaraðila og má þar nefna Akureyrarbæ, Samskip, Vífilfell Coca Cola á Íslandi, Vöku-Helgafell og Skátabúðina, síðar Nanoq. Ennfremur ótal stofnanir og fyrirtæki á Akureyri og víða um land.
Árið 1978 hófust samskipti við Kongsberg Idrettsforening í Noregi og fóru sigurvegarar í 12 ára flokkum í alpagreinum árlega til keppni á Andrésar Andar leika í Kongsberg. Norðmenn hafa sent keppendur hingað af og til. Þessi samskipti lögðust af þegar leikarnir í Noregi hættu 1986. Um nokkurra ára skeið hafa grænlensk börn tekið þátt í Andrésar Andar leikunum á Akureyri.Nú er hafið nýtt tímabil í samskiptum við aðrar þjóðir með því að sigurvegarar í göngu í elsta flokki Andrésar Andar leikanna keppa árið eftir á stóru göngumóti í Holmenkollen í Noregi sem er fyrir aldurinn 12 og 13 ára og sigurvegarar í svigi og stórsvigi keppa á Mikka Músarleikum á Ítalíu, nánar til tekið í Pinzolo. Hefur verið samið við viðkomandi aðila í Noregi og Ítalíu um að íslenskir unglingar á skíðum taki þátt í þessum mótum í framtíðinni.
Í ár verða leikarnir haldnir 21. - 24. apríl.
Andrés verður á staðnum!