Hvað eru Andrésarmyndirnar?

Andrésarmyndirnar eru söfnunarkort sem munu fylgja Andrésblöðum. Kortin eru væntanleg og við munum stöðugt bæta inn nýjum myndum og nýjum seríum. Áskrifendur geta því skipt myndum sín á milli. Hægt er að spila skemmtilegan leik með spilunum sem er útskýrðu nánar hér að neðan.

Hvernig virkar leikurinn?

Ótakmarkaður fjöldi leikmanna getur tekið þátt í leiknum. Fjöldi spila er einnig ótakmarkaður, en gott er að miða við að hver leikmaður hafi að lágmarki 3 á hendi þegar leikurinn hefst. Lengd leiksins fer eftir því hve mörg spil leikmenn nota.

Spilin eru stokkuð og þeim skipt á milli leikmanna. Ef eitt spil er umfram skal yngsti leikmaðurinn taka það. Hver leikmaður tekur bunkann sinn og snýr efsta spilinu upp svo enginn annar sjái hvað hann er með á hendi.

Á hverju Andrésarkorti eru tvær tölur sem tákna ýmist gáfur eða heppni. Gáfur eru táknaðar með ljósaperu og heppni er táknuð með fjögurra laufa smára. Leikmaðurinn sem er vinstra megin við þann sem gaf, ákveður um hvort verði spilað. Hann segir upphátt hvort hann hefur valilð gáfur eða heppni um leið og hann leggur spilið á borðið. Hinir leggja þá efstu spilin úr sínum bunka á borðið. Sá sem á spilið með hæstu tölunni í þeim reit sem leikmaðurinn valdi, vinnur umferðina. Hann tekur öll spilin sem eru á borðinu og stingur þeim neðst í bunkann sinn.

Ef tvö spil hafa sömu tölu, þá eru öll spil í þeirri umferð lögð til hliðar á borðinu. Sá sem átti að gera setur þá út annað spil og sigurvegari þeirrar umferðar tekur einnig þau spil sem lögð höfðu verið til hliðar.

Sá leikmaður sem á endanum hefur fengið öll spilin, vinnur leikinn.